Fotbolti.net
15.05.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Nezir Ohran og Örlygur Þór í KS/Leiftur (Staðfest)

Nezir er komin til KS/Leiftur.

Nezir er komin til KS/Leiftur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

KS/Leiftur hefur fengið Nezir Ohran til liðs við sig frá Hvöt og Örlyg Þór Helgason frá Þór.
Nezir Ohran er reyndur markvörður en hann hefur varið mark Hvatar undanfarin ár eftir að hafa áður leikið með Sindra.

Í fyrra lék hann þrettán leiki í annarri deildinni en hann missti af síðari hluta móts vegna meiðsla.

Hann spilaði ekkert með Hvöt í vetur og núna er hann farinn í KS/Leiftur þar sem hann mun berjast um markvarðarstöðuna við hinn unga Halldór Ingvar Guðmundsson.

Örlygur er einnig reyndur leikmaður en hann lék síðast með KA 2006 og Dalvík/Reyni árið 2007 áður en hann tók sér tveggja ára hlé frá fótboltanum.

Í vetur æfði Örlygur síðan og spilaði með Þór og núna hefur hann ákveðið að ganga í raðir KS/Leifturs.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild og þeir geta því leikið með KS/Leiftri gegn Víði í fyrstu umferðinni í annarri deildinni í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.