15.05.10 - 18:09
Hafliði Breiðfjörð
Pétur Óskar tekur fram skóna og fer í ÍR (Staðfest)

Pétur Óskar í leik með ÍBV gegn KR sumarið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Framherjinn Pétur Óskar Sigurðsson hefur tekið fram skóna að nýju og ætlar að spila með ÍR í 1. deildinni í sumar.
Pétur Óskar sem verður 26 ára gamall á árinu hefur ekkert spilað í alvöru liði síðan hann var í ÍBV í efstu deild sumarið 2005.
Eftir það glímdi hann mikiið við meiðsli en í dag er hann alveg laus við öll meiðsli og í fínu formi og klár í slaginn í 1. deildina með ÍR.
Hann þekkir vel til Guðlaugs Baldurssonar þjálfara ÍR sem þjálfaði hann einmitt í ÍR á seinni hluta ársins 2005 er Pétur kom þangað á láni frá FH.
Áður höfðu þeir verið saman í 2. flokki FH sem vann alla leiki sína sumarið 2003 en þá var Pétur markahæsti leikmaður mótsins.
Pétur hafði leikið 18 leiki með Breiðablik sumarið 2004 og skorað í þeim 9 mörk og skoraði svo 4 mörk í 12 leikjum með ÍBV.
ÍR er með fullt hús stiga, 6 stig eftir tvær umferðir og deilir toppsæti 1. deildar með nágrönnum sínum í Leikni.