Fotbolti.net
15.05.10 - 19:43
Hafliði Breiðfjörð

Eyþór Guðnason og Sverrir Sverrisson í Njarðvík (Staðfest)

Eyþór Guðnason er kominn í Njarðvík.

Eyþór Guðnason er kominn í Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Njarðvík hefur í dag fengið liðsstyrk á lokadegi félagaskiptagluggans því Eyþór Guðnason og Sverrir Þór Sverrisson eru komnir til félagsins að nýju.
Eyþór kemur til félagsins frá ÍR þar sem hann skoraði 6 mörk í 20 leikjum á síðasta ári. Hann er 35 ára gamall framherji sem lék síðast með Njarðvík sumarið 2006 en hefur einnig leikið með HK og Víkingi Ólafsvík.

Sverrir Þór Sverrisson þekkir líka vel til hjá Njarðvík en hann kemur til félagsins frá nágrönnunum í Keflavík þar sem hann lék í fyrra. Hann er einnig 35 ára gamall og er þekktur fyrir að leika körfubolta einnig.

Hann lék tvo leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni í fyrra en hafði leikið með Njarðvík til ársins 2007 þangað sem han snýr nú aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.