Fotbolti.net
15.06.10 - 18:28
Magnús Már Einarsson

Moritz Volz til St Pauli (Staðfest)

Moritz Volz til St Pauli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Moritz Volz hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska félagið St Pauli.
Volz hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Fulham fyrir ári síðan eftir fimm ára dvöl hjá félaginu.

Volz var áður í herbúðum Arsenal en þessi þýski varnarmaður er núna kominn aftur til heimalandsins eftir ellefu ára dvöl á Englandi.

,,Ég er klár á því að þetta félag hentar mér og ég henta þessu félagi,\" sagði Volz.

St Pauli komst upp í þýsku Bundesliguna í vor en á dögunum fékk félagið einnig framherjann Gerald Asamoah frá Schalke.

Sjá einnig:
Hin Hliðin - Mortiz Volz (Ágúst 2007)

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.