Fotbolti.net
15.06.25 - 16:45
Brynjar Ingi Erluson

Daníela Dögg á toppnum - Dóttir Solskjær skoraði

Það gengur vel hjá Daníelu og stöllum hennar í Álasundi

Það gengur vel hjá Daníelu og stöllum hennar í Álasundi

Canon

Mynd: Heimasíða Álasunds

Hertz
Daníela Dögg Guðnadóttir og stöllur hennar í norska liðinu Álasund eru á toppnum í B-deildinni eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Ham/Kam í dag.
Blikakonan er að eiga gott tímabil í Noregi, en hún hefur spilað með aðalliðinu síðustu ár og er stefnan nú sett á að komast upp í úrvalsdeildina.

Hún spilaði allan leikinn í 2-0 sigri liðsins í dag og er Álasund á toppnum með tveggja stiga forystu á toppnum.

Karna Solskjær skoraði annað mark liðsins í leiknum eftir að hafa komið inn af bekknum, en hún er dóttir Ole Gunnar, fyrrum stjóra og leikmanns Manchester United á Englandi.

Þetta var þriðja mark Körnu í deildinni sem er á fjórða tímabili sínu með aðalliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.