Fotbolti.net
15.07.10 - 08:34
Hörður Snævar Jónsson

Belleti til Fluminense (Staðfest)

Belleti til Fluminense (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juliano Belletti fyrrum leikmaður Chelsea hefur samþykkt að skrifa undir samning við Fluminense í heimalandi sínu.
Belletti fór frá Chelsea í síðasta mánuði eftir að honum var ekki boðinn nýr samningur.

Þessi 34 ára gamli bakvörður hefur samþykkt tveggja ára samning og fer í læknisskoðun síðar í vikunni.

Belletti gæti fylgt fyrrum samherji hans hjá Chelsea, Deco en Fluminense vill fá hann í sínar raðir.

Hann gekk í raðir Chelsea árið 2007 og lék 54 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði fimm mörk.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.