Fotbolti.net
15.07.10 - 15:47
Magnús Már Einarsson

Jamie Mcunnie til Hauka (Staðfest)

Jamie Mcunnie til Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Haukar hafa samið við skoska leikmanninn Jamie Mcunnie sem hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga. Jamie er 27 ára Skoti sem getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni.
Hann lék á árum áður með Arnari Gunnlaugssyni, framherja Hauka, í Dundee United í Skotlandi en hann á jafnframt 22 leiki með U-21 árs landsliði Skotlands og þar af 15 sem fyrirliði liðsins.

Jamie lék síðast með East Fife í Skotlandi en hann verður nú með Haukum út tímabilið.

Jamie ætti að fá leikheimild með Haukum fyrir helgi þannig að hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn KR á sunnudagskvöldið.

Jamie er annar leikmaðurinn sem kemur til Hauka á nokkrum dögum því áður hafði Magnús Björgvinsson fengið leikheimild með Haukum eftir að hafa æft með liðinu í allt sumar.

Heimild: Heimasíða Hauka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.