15.08.09 - 06:00
Gunnar Gunnarsson
Víctor Sánchez frá Barcelona til nýliða Xerez (Staðfest)

Víctor Sánchez spilar hjá nýliðum Xerez á komandi tímabili á Spáni.

Mynd: Getty Images

Víctor Sánchez spilar hjá nýliðum Xerez á komandi tímabili á Spáni.

Mynd: Getty Images
Víctor Sánchez er farinn frá Evrópumeisturum Barcelona til nýliða Xerez í La Liga deildinni á Spáni en klausa er í samningi leikmannsins sem gerir Katalóníufélaginu mögulegt að kaupa leikmanninn aftur 30. júní árið 2010 ef þeir kjósa það.
Sánchez gekk til liðs við Barcelona árið 2005 frá nágrannaliði CE Europa. Leikmaðurinn þreytti frumraun sína með aðalliði Börsunga í 2-2 jafntefli gegn CD Alcoyano í spænsku bikarkeppninni, 2. janúar árið 2008.
Hann spilaði hins vegar sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið gegn Almería 18. mars 2008 en þessi 21 árs gamli leikmaður kom við sögu í 12 leikjum hjá Barcelona þegar félagið vann þrennuna á síðustu leiktíð.

Heimild: Opinber heimasíða Barcelona