15.08.09 - 06:00
Gunnar Gunnarsson
Danny Simpson á láni til Newcastle frá Man. United (Staðfest)

Danny Simpson lyftir hér verðlaunagrip sem Manchester United vann á æfingamóti í Suður-Afríku árið 2006.

Mynd: Getty Images

Danny Simpson lyftir hér verðlaunagrip sem Manchester United vann á æfingamóti í Suður-Afríku árið 2006.

Mynd: Getty Images
Newcastle hafa fengið varnarmanninn Danny Simpson að láni frá ensku meisturunum í Manchester United.
Hinn 22ja ára gamli leikmaður hefur aðeins fengið að spreyta sig í átta leikjum á Old Trafford en hann mun vera á láni hjá Newcastle fram í janúar.
Simpson er ekki óvanur því að vera lánaður en hann hefur áður verið á lánssamningi hjá Royal Antwerp, Sunderland, Ipswich og Blackburn síðan hann skrifaði undir hjá United sumarið 2003.
Simpson er ekki óvanur því að vera lánaður en hann hefur áður verið á lánssamningi hjá Royal Antwerp, Sunderland, Ipswich og Blackburn síðan hann skrifaði undir hjá United sumarið 2003.
Heimild: Soccernet
