Fotbolti.net
15.10.10 - 15:19
Alexander Freyr Tamimi

NESV eignast Liverpool (Staðfest)

Þessir menn eiga ekki lengur Liverpool.

Þessir menn eiga ekki lengur Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur staðfest yfirtöku New England Sports Ventures á félaginu og er þar með bundinn endi á dramatíska viku. John Henry og félag hans, sem á einnig bandaríska hafnaboltaliðið Boston Red Sox, taka því við af þeim Tom Hicks og George Gillett sem eigendur Liverpool.
Þeir síðarnefndu reyndu allt hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir söluna og hafa þeir farið fram á 1,6 milljarða dollara í skaðabætur vegna þess hversu lítinn pening þeir fengu fyrir félagið. Hicks sagði að NESV hefði stórlega vanmetið verðmæti Liverpool og reyndi hann sjálfur að selja sinn hluta til Mill Financial, en þeir fengu ekki grænt ljós frá ensku úrvalsdeildinni.

Yfirtaka NESV þýðir að Skotlandsbanki mun fá greidda 237 milljóna punda skuld sína og fer Liverpool því ekki í greiðslustöðvun. Stuðningsmenn liðsins ættu því að geta gert sér glaðan dag á þessum frábæra föstudegi, enda flestir dauðfegnir að losna við þá Gillett og Hicks.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.