15.10.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Steve Cotterill ráðinn stjóri Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve Cotterill er hættur störfum sem knattspyrnustjóri Hermanns Hreiðarssonar og félaga í Portsmouth en hann var í gær ráðinn stjóri Nottingham Forest.
Cotterill tekur við Forest af Steve McClaren sem hætti hjá Nottingham Forest á dögunum.
Hinn 47 ára gamli Cotterill kvaddi leikmenn Portsmouth á æfingu í gær áður en hann keyrði til Nottingham.
,,Þetta var ekki auðveld ákvöðun út af sambandinu sem ég á við fólkið hjá Portsmouth,\" sagði Cotterill í gær.
,,Stuðningsmennirnir, leikmennirnir og starfsfólkið hefur verið frábært. Þetta hefur verið erfiður dagur og ég vil líta fram á við núna.\"

Heimild: BBC