15.10.11 - 13:53
Hafliði Breiðfjörð
Margrét Lára Viðarsdóttir í eitt besta lið heims (Staðfest)

Margrét Lára er gengin til liðs við Turbine Potsdam í Þýskalandi.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir framherji íslenska landsliðsins er gengin til liðs við eitt besta lið heims, Turbine Potsdsam frá Þýskalandi og hefur gert eins árs samning við félagið með möguleika á framlengingu til annars árs.
Margrét Lára hefur leikið undanfarin þrjú ár með sænska liðinu Kristianstad en tilkynnti eftir leik liðsins gegn Dalfjörs í lokaumferð sænsku deildarinnar rétt í þessu að hún hafi ákveðið að taka tilboði þýska félagsins. Hún skoraði þrennu í lokaleiknum í dag í 5-1 sigri.
Hún fær ekki leikheimild í þýskalandi fyrr en þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar næstkomandi en þá er þýska deildin í vetrarríi fram í febrúar. Hún má þó leika bikarleiki þrátt fyrir það.
Margrét Lára hefur áður leikið í Þýskalandi því hún var hjá Duisburg í skamman tíma tímabilið 2006-2007 en sneri aftur ti l Íslands og lék með Val í tvö ár. Hún fór aftur í atvinnumennsku til Linköping í Svíþjóð árið 2008 þaðan sem hún fór til Kristianstad.
Hún er ein besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt og hefur leikið 75 leiki fyrir Ísland og skorað í þeim 63 mörk. Hún hefur glímt mikið við meiðsli undanfarin ár og ekki getað beitt sér að fullu en hefur verið að ná sér og skoraði 16 mörk á tímabilinu sem var að ljúka í Svíþjóð.
Turbine Potsdam hefur unnið þýsku Bundesliguna undanfarin þrjú ár. Liðið vann Meistaradeild kvenna árið 2010 og komst í úrslitaleikinn árið 2011. Liðið kom hingað til lands í síðasta mánuði og mætti Þór/KA í Meistaradeildini. Samanlagður sigur þýska liðsins í viðureigninni var 14-2.