Fotbolti.net
15.11.11 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Ásgeir Aron í Fjölni (Staðfest) - Ómar Hákonar framlengir

Ásgeir Aron Ásgeirsson í leik með Fjölni árið 2009.

Ásgeir Aron Ásgeirsson í leik með Fjölni árið 2009.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Ásgeir Aron Ásgeirsson hefur gengið til liðs við Fjölni á nýjan leik en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Ásgeir Aron lék á síðasta tímabili með HK og í fyrrasumar var hann á mála hjá ÍBV.
Þar áður lék þessi 25 ára gamli varnar og miðjumaður með Fjölnismönnum í fjögur ár. Ásgeir Aron lék meðal annars með Fjölni í efstu deild 2008 og 2009 og fór með liðinu í bikarúrslit 2007 og 2008.

Ásgeir Aron skoraði á sínum tíma samtals fimm mörk í 82 deildar og bikarleikjum með Fjölni en í sumar skoraði hann tvö mörk í sautján leikjum með HK í fyrstu deildinni.

Fjölnismenn hafa einnig samið við fleiri leikmenn en Ómar Hákonarson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Þessi þrítugi framherji var markahæstur hjá Fjölni síðastliðið sumar með tíu mörk í deild og bikar en hann hefur leikið í Grafarvoginum síðan árið 2006.

Að auki hafa Fjölnismenn gert þriggja ára samning við Arnar Frey Ólafsson efnilegan markmann úr 2.flokki félagsins.

Fjölnismenn leika í kvöld sinn fyrsta æfingaleik á undirbúningstímabilinu en liðið mætir þá Fylki klukkan 20:00. Þetta verður fyrsti leikur Fjölnis undir stjórn Ágústar Gylfasonar og þá er þetta einnig fyrsti leikur Fylkis undir stjórn Ásmundar Arnarssonar sem hætti hjá Fjölni í haust til að taka við Árbæjarliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.