Fotbolti.net
15.11.11 - 23:13
Hörður Snævar Jónsson

Ásgeir Börkur framlengdi við Fylki (Staðfest)

Ásgeir Börkur framlengdi við Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur framlengt samning sinn við Fylki til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á Fylkismenn.is

Eins og Fótbolti.net greindi fyrst frá í dag var Ásgeir búinn að ná samkomulagi við Fylki.
Fyrri samningur Ásgeirs átti að renna út um áramótin en hann ákvað að vera áfram í Árbænum þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum.

Ásgeir Börkur er uppalinn hjá Fylki en þessi 24 ára gamli leikmaður var á láni hjá Selfossi árið 2007 og 2008.

Í sumar spilaði Ásgeir Börkur 18 leiki í Pepsi-deildinni en samtals hefur hann skorað tvö mörk í 68 leikjum í deild og bikar.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.