15.12.11 - 17:16
Hafliði Breiðfjörð
Atli Sigurjónsson til KR (Staðfest) - Nýir leikmenn voru kynntir

Þorsteinn Már Ragnarsson í búningi KR.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Atli Sigurjónsson er genginn til liðs við KR frá Þór á Akureyri en hann skrifaði undir þriggja ára samning í KR heimilinu rétt í þessu og við sama tilefni voru aðrir leikmenn sem hafa komið til félagsins í karla og kvennaboltanum í vetur kynntir.
Atli Sigurjónsson er tvítugur leikmaður hefur leikið með meistaraflokki Þórs frá 2008 en síðasta sumar lék hann 22 leiki í deild og bikar. Þessi hæfileikaríki leikmaður á tvo U21-landsleiki að baki og þrjá U19-leiki.
Þórsarar tóku einnig tilboði frá Breiðabliki í Atla sem hefur tekið þátt í æfingaleikjum með KR að undanförnu og ákvað að lokkum að semja við Íslands- og bikarmeistarana.
Við sama tilefni voru þeir Haukur Heiðar Hauksson og Þorsteinn Már Ragnarsson sem komu til félagsins frá KA og Víkingi Ólafsvík í vetur formlega kynntir. Haukur Heiðar samdi til 2014 og Þorsteinn Már til 2015.
Auk þess hafa ellefu leikmenn framlengt samninga sína við félagið. Þeir Jordao Diogo og Björn Jónsson framlengdu til 2013 og Baldur Sigurðsson, Dofri Snorrason, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Gunnar Þór Gunnarsson, Óskar Örn Hauksson, Kjartan Henry Finnbogason, Ásgeir Örn Ólafsson, Torfi Karl Ólafsson og Hugi Jóhannesson til ársins 2014.
KR kynnti einnig þá leikmenn sem hafa komið í kvennalið félagsins, þær Önnu Garðarsdóttur úr Aftureldingu og Emmu Higgins og Ölmu Rut Garðarsdóttur úr Grindavík. Auk þess verða þær Olga Kristina Hansen og Sigrún Inga Ólafsdóttir áfram en þær voru á láni hjá KR frá Álftanesi og Breiðablik í sumar. Hrafnhildur Agnarsdóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir og Selja Ósk Snorradóttir hafa framlengt samninga sína.