15.12.11 - 22:16
Alexander Freyr Tamimi
Landon Donovan til Everton (Staðfest)

Donovan snýr aftur til Everton í janúar.

Mynd: Getty Images

Donovan snýr aftur til Everton í janúar.

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur staðfest að þeir muni fá bandaríska landsliðsmanninn Landon Donovan á láni frá Los Angeles Galaxy í janúar næstkomandi.
Donovan kom einnig á láni til Everton árið 2010 og spilaði hann þá tíu leiki við félagið. Hann hefur nú samþykkt að fara á Goodison Park á nýjan leik og mun hann geta spilað þann 4. janúar gegn Bolton.
,,Ég er hæstánægður með að við höfum getað fengið Landon aftur. Hann mun miðla vel af reynslu sinni í janúar og febrúar,\" sagði David Moyes stjóri Everton.
,,Hann stóð sig vel með okkur fyrir tveimur árum og vonandi mun hann sýna sömu gæði núna.\"

Heimild: Sky