Fotbolti.net
16.01.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Hermann Hreiðarsson til Coventry (Staðfest)

Hermann í leik með Portsmouth.

Hermann í leik með Portsmouth.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn reyndi Hermann Hreiðarsson hefur gengið til liðs við Coventry en þetta staðfesti umboðsmaður hans Ólafur Garðarsson í samtali við Fótbolta.net í dag.
Hermann komst að samkomulagi um að losna undan samningi hjá Portsmouth og hann hefur nú gert samning við Coventry sem gildir til 30. júní.

Í byrjun tímabils var Hermann að glíma við meiðsli en hann er nú orðinn góður af þeim og er í góðu standi að sögn Ólafs.

Hermann er gríðarlega reyndur og hefur leikið með Charlton, Ipswich, Wimbledon, Brentford og Crystal Palace í enska boltanum.

Hann verður 38 ára næsta sumar og getur bæði leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hann var landsliðsfyrirliði Íslands í stjórnartíð Ólafs Jóhannessonar.

Hermann og hans nýju félagar eiga mikið verk fyrir höndum því Coventry er í neðsta sæti ensku Championship deildarinnar með 19 stig, sjö stigum frá öruggu sæti eftir 1-0 tap gegn Derby um helgina. Aron Einar Gunnarsson lék með liðinu í þrjú ár áður en hann fór til Cardiff í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.