Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, vill spila allar mínútur í öllum leikjum en þarf oft að sætta sig við smá hvíld af og til.
Salah segir frá þessu sjálfur í viðtali við beIN Sports en leikjaálag Liverpool hefur verið mikið síðustu vikur líkt og hjá öðrum liðum.
Salah er enn fastamaður í sóknarlínu Jurgen Klopp en væri til í að sleppa því alfarið að fá sér sæti á bekknum.
„Ég vil spila hverja einustu mínútu í hverjum einasta leik. Ég vil spila 95 mínútur, ekki bara 90! Ég virði þó ákvörðun þjálfarans," sagði Salah.
„Staðan er allt önnur í dag vegna kórónuveirunnar og öll lið eiga jafn góðan möguleika á titlinum án stuðningsmanna."
„Það er of snemmt að spá til um sigurvegara deildarinnar. Það eru allir nálægt hvor öðrum en ég vil vinna hana aftur."
Athugasemdir