Fotbolti.net
16.01.24 - 08:47
Elvar Geir Magnússon

Mourinho rekinn frá Roma (Staðfest)

Mourinho rekinn frá Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Roma, sem situr í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar, er búið að reka Jose Mourinho. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 3-1 tap gegn AC Milan á sunnudaginn.

Í tilkynningu Roma þakka eigendurnir Dan og Ryan Friedkin honum fyrir framlag sitt og ástríðu í starfi.

Roma er með 29 stig, fimm stigum frá Fiorentina sem er í fjórða sætinu. Liðið hefur skorað 32 mörk og fengið á sig 24 í fyrstu 20 deildarleikjunum.
Í síðustu viku tapaði Roma gegn erkifjendum sínum í Lazio í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins og í kjölfarið fékk Mourinho mikla gagnrýni frá stuðningsmönnum. Það var í fyrsta sinn sem stuðningsmenn snérust gegn honum síðan hann var ráðinn 2021.

Hann vann Sambandsdeildina á fyrsta tímabili sínu með Roma og beið lægri hlut í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili. Honum tókst ekki að ná topp fjórum á þeim tveimur heilu tímabilum sem hann var hjá Roma.

Eftir tapið gegn Lazio talaði Mourinho um að óraunhæfar væntingar væru gerðar til Roma miðað við styrkleika leikmannahópsins. Þær væntingar væru því hann sjálfur væri svo stórt nafn.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.