Newcastle goðsögnin Alan Shearer segist hafa orðið svo bálreiður yfir frammistöðu dómara leiks Newcastle og Aston Villa að hann þakkar fyrir að hafa ekki verið meðlýsandi á BBC yfir leiknum.
Fjöldi stórra mistaka frá Chris Kavanagh dómara og hans teymi lituðu þennan bikarleik sem Newcastle vann 3-1 eftir að hafa lent undir.
Tammy Abraham skoraði fyrsta mark leiksins og það fékk að standa þrátt fyrir að hafa átt að vera dæmt af vegna rangstöðu og þá slapp Lucas Digne frá rauðu spjaldi eftir háskalega tæklingu á Jacob Murphy. Digne fékk svo ekki á sig vítaspyrnu þegar hann handlék boltann innan teigs í seinni hálfleik

Geta ekki tekið ákvarðanir án VAR
Shearer var sérfræðingur í sjónvarpssal fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.
„Þegar þú ert í sjónvarpssalnum færðu tíma til að hugsa, þú getur ákveðið hvað þú ætlar að segja og hvernig þú kemur því frá þér. Ekki nema eitthvað gerist á allra síðustu sekúndunum," segir Shearer.
„Ef ég hefði verið meðlýsandi á sjálfum leiknum hefði ég örugglega verið rekinn, vegna þess sem mér langaði að segja um dómarana."
„Menn geta átt slæma daga, en þessi mistök í þessum leik. Hversu slæm voru þau? Þau voru alveg skelfileg. Það voru fjórar til fimm stórar ákvarðanir sem áttu að vera einfaldar en ég myndi segja að það hafi verið ein rétt."
Ekki er notast við VAR í 32-liða úrslitum FA-bikarsins og segir Shearer að dómarar séu orðnir of vanir því að þurfa ekki að taka ákvarðanir vegna tækninnar.
„Skyndilega er öryggisventillinn þeirra farinn og þeir geta ekki hugsað: 'Það skiptir engu máli þó þetta sé rangt því VAR leiðréttir mig'. Án VAR þá voru dómararnir í þessum leik alveg vonlausir. Þetta er ekki boðlegt," segir Shearer.
Athugasemdir