Írski spekingurinn Roy Keane kallar Liverpool slæmt Englandsmeistaralið og að það hafi orðið svakaleg hnignun hjá félaginu síðan það varð meistari síðasta vor.
Keane hefur áður kallað Liverpool slæma meistara en það gerði hann árið 2021.
Liverpool rétt náði Meistaradeildarsæti tímabilið eftir þann titil og var Keane ekki hrifinn af því.
Hann tjáði sig aftur um Liverpool eftir 1-1 leikinn gegn Tottenham í gær og segir að það sé eitthvað mikið í gangi á bak við tjöldin.
„Ég hef sagt það oft og mörgum sinnum að Liverpool eru lélegir meistarar. Þeir hafa verið það á þessari leiktíð og voru það líka síðast þegar þeir unnu deildina. Þeir eru núna 21 stigi á eftir Arsenal. Það er svakaleg hnignun. Það er svo lélegt.“
„Ég held að það séu vandamál bakvið tjöldin og það séu stærri vandamál í gangi þar. Það eru hlutir sem þú getur lagað, en það er eitthvað í gangi. Ég veit ekki hvort allir séu á sömu blaðsíðu og það virðist ekki vera neitt samspil milli leikmanna.“
„Það er ýmislegt sagt eftir að þú vinnur stóra titla og þá koma stórar áskoranir í kjölfarið, en getur þú staðið við þau orð?.“
„Hnignun getur augljóslega átt sér stað og það gerðist nýlega hjá Man City svona miðað við gæðastaðal þeirra, en þeir eru samt að berjast um annað eða þriðja sætið.“
„Þeir eru ekki 20 eða 30 stigum á eftir liðinu sem er að vinna deildina. Það er hnignun, en að Liverpool sé svona langt á eftir í kjölfar síðasta tímabils. Þeir töpuðu fjórum leikjum en hafa nú þegar tapað níu á þessu ári. Ég á bara erfitt með að skilja það.“
„Það var eins og það væri eitthvað við hugarfarið og ég gagnrýndi þetta á síðasta ári þegar mér fannst þeir djamma of mikið. Þeir voru á djamminu þegar fjórar, fimm eða sex vikur voru eftir af tímabilinu og fögnuður eftir hvern einasta heimaleik og ég hugsaði bara: 'Þið eruð Liverpool FC? Er ekki við því að búast að þið vinnið titla?'.“
„Þannig þegar þú vinnur deildina þá máttu njóta þess, en reynið að endurtaka leikinn og standa við það árið eftir. Þetta er ástæðan fyrir því að þú ert að spila fyrir stór félög, ekki þessi lið sem vinna bikar og hverfa í 10-15 ár. Það sama á við um Arsenal.“
„Þegar Arsenal vinnur deildina í ár þá vil ég ekki að þeir muni hverfa í næstu þrjú, fjögur eða fimm árin. Þú verður að sanna þig og ekki vera 20 eða 30 stigum á eftir toppliði næsta árs. Þú verður að veita einhverja samkeppni. Það er áskorunin.“
„Og þegar þú gefur mörk eins og þessi, hvort sem það var gegn Wolves eða nýlega í leiknum gegn Man City þá horfi ég þennan leikmannahóp, hugarfarið, vinnuframlagið, þessa þrá og hvað þeir eru að gera á æfingasvæðinu og ég er bara ekki hrifinn af því sem ég sé hjá Liverpool. Ég er alls ekki hrifinn af þessu,“ sagði Keane.
Athugasemdir

