16.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Víkingur lánar Davíð Ellertsson í ÍH (Staðfest)

Davíð Ellertsson er farinn í ÍH.

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Davíð Ellertsson er farinn í ÍH.

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Víkingar lánuðu um helgina bakvörðinn Davíð Ellertsson til 2. deildarliðs ÍH en Davíð hafði komið til Víkings frá Haukum í fyrra.
Davíð lék tólf leiki með Víkingi í fyrstu deildinni í fyrra en hefur nú verið lánaður niður um deild, til ÍH, sem hefur verið duglegt að bæta við sig leikmönnum í vikunni.
Davíð er annar leikmaðurinn sem Víkingar lána frá sér um helgina en áður fór Elvar Freyr Arnþórsson einnig á lán til Gróttu.
Þá hefur Andri Hrafn Sigurðsson einnig farið til ÍH frá Fylki en hann lék einmitt með ÍH á síðasta ári og skoraði 5 mörk í 18 leikjum.

Heimild: Víkingur.net