16.05.10 - 14:04
Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Ólöf Olsen og Dagný Harðardóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Guðrún Ólöf Olsen fagnar marki með Keflavík gegn Stjörnunni sumarið 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Ólöf Olsen fagnar marki með Keflavík gegn Stjörnunni sumarið 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hafði í nógu að snúast við að styrkja lið sitt núna síðustu dagana fyrir lokun félagaskiptagluggans sem lokaði á miðnætti því sex leikmenn komu til félagsins frá því á fimmtudag.
Nú síðast var Guðrún Ólöf Olsen að koma á láni frá KR og Dagný Harðardóttir kom frá ÍR. Auk þeirra var þegar búið að greina frá komu Elísu Óskar Viðarsdóttur, Katie McCoy, Laura King og Lindsey Shwartz.
Guðrún Ólöf Olsen kemur á láni frá KR en þangað hafði hún komið frá Keflavík fyrir síðustu leiktíð og leikið 10 leiki í deild og bikar. Hún er 18 ára gömul á árinu.
Dagný Harðardóttir sem kemur frá ÍR er 17 ára á árinu. Hún lék fimm leiki með ÍR í Pepsi-deildinni í fyrra.