Fotbolti.net
16.05.10 - 16:57
Magnús Már Einarsson

Vignir Daníel Lúðvíksson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Vignir Daníel Lúðvíksson í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Jón Guðmundsson

Fjarðabyggð fékk í gær liðsstyrk þegar Vignir Daníel Lúðvíksson kom til félagsins frá Fram.
Vignir er 18 ára og kemur til með að spila með 2. flokki en hann kemur ábyggilega einnig til með að banka á dyrnar hjá meistaraflokki karla.

Vignir hefur síðustu fjögur ár verið í FH en hann skipti yfir í Fram í febrúar.

Fjarðabyggð fékk nokkra leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.

Felix Hjálmarsson kom einnig frá Fylki og Aron Már Smárason kom á láni frá Breiðablik en hann skoraði þrennu í fyrsta leik gegn ÍA í gær.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.