16.06.10 - 18:31
Magnús Már Einarsson
Massimo Maccarone til Palermo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Palermo hefur keypt framherjann Massimo Maccarone frá Siena fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi þrítugi leikmaður er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Palermo með möguleika á fjórða árinu.
Þetta er tíunda félagið sem Maccarone leikur með á ferlinum en hann hefur skorað 44 mörk í 95 leikjum með Siena síðan hann kom til félagsins frá Middlesbrough fyrir þremur árum.
Maccarone náði ekki að hjálpa Siena að forðast fall úr Serie A á síðustu leiktíð og hann hefur núna ákveðið að ganga til liðs við Palermo sem leikur í Evrópudeildinni á næsta tímabili.

Heimild: Soccernet