„Þetta er niðurstaða úr samtali út frá því hvernig hlutirnir hafa gengið undanfarna mánuði," segir Eggert Herbertsson, formaður knattspyrnudeildar ÍA, í samtali við Fótbolta.net.
Í morgun var það tilkynnt að Jón Þór Hauksson væri ekki lengur þjálfari ÍA. Í tilkynningunni kom fram að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins.
Í morgun var það tilkynnt að Jón Þór Hauksson væri ekki lengur þjálfari ÍA. Í tilkynningunni kom fram að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins.
„Jón Þór er búinn að vinna frábært starf. Tímabilið í fyrra var gott og hann stóð sig vel í Lengjudeildinni eftir brösulega byrjun þar. Liðið var á góðum stað en því miður hefur þetta ekki verið að smella núna. Sama hvað var reynt, þá komumst við ekki í gír. Stundum verður maður bara að gera einhverjar breytingar,"
Mjög leiðinlegt
Jón Þór er mikill Skagamaður og var hann á sínu fjórða tímabili með liðið eftir að hafa tekið við fyrir tímabilið 2022. Liðið féll það tímabil en fór aftur upp 2023 eftir erfiða byrjun og mikinn viðsnúning. Á síðasta tímabili endaði liðið í 5. sæti Bestu deildarinnar eftir að hafa verið í harðri Evrópubaráttu fram að lokaleik tímabilsins.
„Samtalið var bara heiðarlegt og báðir aðilar áttuðu sig á stöðunni. Þetta var heiðarlegt og gott samtal enda miklir félagar að ræða saman," segir Eggert en Jón Þór hefur að miklu leyti unnið gott starf á Skaganum.
„Þetta er mjög leiðinlegt. Við hefðum gjarnan viljað að þetta hefði gengið upp en því miður sáu báðir aðilar það að þetta væri ekki að smella núna. Þá verður að gera eitthvað þar sem það er mikið undir í þessu."
Í sumar hefur gengið illa og eftir 4-1 tap gegn Aftureldingu í gær var ákveðið að ráðast í breytingar. ÍA er á botni Bestu deildarinnar með níu stig eftir ellefu umferðir.
„Manni hefur fundist vanta aðeins meiri stemningu í mannskapinn. Við erum með gott lið og ég hef fulla trú á framhaldinu. Við eigum í seinni umferð sjö heimaleiki og fjóra útileiki, og almennt séð ættum við að geta gert betur og keyrt okkur aftur í gang," segir Eggert.
Hver tekur við skútunni?
Nú er spurning hver tekur við og er sú vinna hafin hjá Skagamönnum. Verður kominn þjálfari fyrir næsta leik sem er gegn Stjörnunni á sunnudag?
„Það er erfitt að segja. Ef allt gengur vel og hratt fyrir sig, þá er það möguleiki. En það er ómögulegt að segja að svo stöddu," segir Eggert.
„Við erum komin með nöfn á blað en það er spurning hversu langt við förum með það. Við þurfum að taka umræðu um það hvað við teljum henta á þessum tímapunkti og svo framvegis."
Það hafa verið nokkrir þjálfarar nefndir og eru sumir þeirra í starfi. Til dæmis Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur. Kemur það til greina að ráða þjálfari sem er nú þegar í starfi?
„Auðvitað er það ekki kjörstaða, en við verðum að gera það sem er best fyrir okkur. Við skoðum alla þá möguleika með opnum huga sem við teljum áhugaverða fyrir okkar félag," sagði Eggert að lokum.
Athugasemdir