Fotbolti.net
16.06.25 - 11:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liggur beinast við að ÍA heyri í Njarðvíkingum

Á sínu öðru heila tímabili með Njarðvík.

Á sínu öðru heila tímabili með Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tilkynnti í dag að Jón Þór Hauksson hefði látið af störfum sem þjálfari ÍA. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var honum sagt upp.

Liðið er þá án aðalþjálfara sem stendur, en Dean Martin var aðstoðarmaður Jóns Þórs og spurning hver hans framtíð verður.

Þegar hugsað er um arftaka Jóns Þórs þarf ekki að leita langt því á Akranesi býr mjög frambærilegur þjálfari. Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gert eftirtektarverða hluti með lið Njarðvíkur í Lengjudeildinni en hann er þar í sínu þriðja þjálfarastarfi.

Hann er á sínu öðru heila tímabili með liðið en áður hafði hann stýrt Vestra og KFS. Hann tók við Njarðvík í erfiðri stöðu sumarið 2023.
Ætlaði aldrei að verða þjálfari en er nú einn sá mest spennandi á Íslandi
TENGT EFNI

Ætlaði aldrei að verða þjálfari en er nú einn sá mest spennandi á Íslandi

Njarðvík er í 2. sæti Lengjudeildarinnar, spilar góðan fótbolta; er það lið í Lengjudeildinni sem hefur skorað flestu mörkin, eða 20 í átta leikjum. Njarðvík og topplið ÍR eru einu taplausu lið deildarinnar.

Gunnar Heiðar er samningsbundinn Njarðvík út tímabilið og ÍA þyrfti því að ná samkomulagi við Njarðvík til að eiga möguleikann á því að fá Gunnar Heiðar í sínar raðir. Sonur hans, Gabríel Snær, er í leikmannahópi ÍA.

Önnur nöfn sem gætu komið til greina hjá ÍA:
Arnar Grétarsson (án starfs)
Haraldur Árni Hróðmarsson (Grindavík)
Jóhannes Karl Guðjónsson (AB)
Jóhannes Þór Harðarson (aðstoðarþjálfari Start)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (án starfs)
Liggur beinast við að ÍA heyri í Njarðvíkingum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór er hættur sem þjálfari ÍA.

Jón Þór er hættur sem þjálfari ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.