16.07.10 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Ragnar Hauksson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Framherjinn sterki Ragnar Hauksson hefur ákveðið að ganga til liðs við Dalvík/Reyni en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ragnar hætti sem spilandi þjálfari KS/Leifturs í síðasta mánuði eftir tæplega fjögurra ára starf.
Í fyrra var Ragnar markahæstur í annarri deildinni með átján mörk auk þess sem hann var valinn í lið ársins.
Ragnar hefur núna ákveðið að ganga til liðs við Dalvík/Reyni og ljóst er að hann mun styrkja liðið mikið.
Dalvík/Reynir hefur ekki tapað leik í sumar og hefur örugga forystu á toppi D-riðils í þriðju deildinni en ljóst er að liðið mun gera harða atlögu að því að komast upp í aðra deild í haust.