Fotbolti.net
16.07.10 - 17:09
Hafliði Breiðfjörð

Pablo Barrera til West Ham (Staðfest)

Barrera  í leik gegn Argentínu á Heimsmeistaramótinu.

Barrera í leik gegn Argentínu á Heimsmeistaramótinu.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur staðfest að mexíkóski landsliðsmaðurinn Pablo Barrera sé genginn til liðs við félagið en kaupverðið er 4 milljónir punda. Barrera sem er 23 ára gamall kemur til félagsins frá UNAM Pumas.
Hann gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu og eftir að hafa fengið atvinnuleyfi skirfaði hann undir fjögurra ára samning við enska félagið með möguleika á eins árs framlengingu.

,,Ég er virkilega ánægður með að semja við West Ham United og er mjög ánægður með móttökurnar sem ég hef fengið frá leikmönnunum og stjóranum. Það var virkilega vel tekið á móti mér,\" sagði Barrera á vef félagsins.

,,Ég vissi um West Ham þegar ég var í Mexíkó. Þetta er stórt félag og ég hef heyrt um frábæra leikmenn sem þeir hafa átt hér áður. Ég hef heyrt mun meira um félagið og hefðirnar hjá því síðan ég kom til London og er mjög spenntur yfir að vera kominn hingað.\"

Félagið sagði einnig að tveir leikmenn til viðbótar komi á næstu klukkustundum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.