16.07.10 - 19:44
Magnús Már Einarsson
Piquionne til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur gengið frá kaupum á Frederic Piquionne framherja Lyon.
Þessi 31 árs gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við West Ham síðdegis í dag.
Avram Grant, stjóri West Ham, þekkir Piquionne en þeir voru báðir hjá Portsmouth á síðasta tímabili.
Þar skoraði Piquionne sjálfur ellefu mörk samanlagt í öllum keppnum.
Piquionne er annar framherjinn sem West Ham semur við í dag en áður hafi félagið krækt í Pablo Barrera.

Heimild: Sky