Fotbolti.net
16.07.10 - 20:00
Magnús Már Einarsson

Jónmundur Grétarsson í Bí/Bolungarvík (Staðfest)

Jónmundur Grétarsson í Bí/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

BÍ/Bolungarvík hefur fengið framherjann Jónmund Grétarsson til liðs við sig frá Haukum.
Jónmundur, sem er 24 ára, hefur leikið fjóra leiki með Haukum í Pepsi-deildinni í sumar.

Jónmundur lék áður með Stjörnunni en hann hefur síðastliðinn tvö ár verið í Haukum.

Hann er annar leikmaðurinn sem BÍ/Bolungarvík fær síðan félagaskiptaglugginn opnaði í gær því miðjumaðurinn Andri Sigurjónsson kom einnig til félagsins á láni frá Stjörnunni.

Andri var í leikmannahópi BÍ/Bolungarvíkur gegn Víkingi Ólafsvík í gærkvöldi en Jónmundur gæti aftur á móti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn ÍH á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.