Neymar er tilbúinn að taka á sig risa launalækkun til að fara frá PSG aftur til Barcelona.
Neymar varð dýrasti leikmaður í heimi þegar PSG keypti hann frá Barcelona á 222 milljónir evra fyrir tveimur árum.
Barcelona bauð 100 milljónir evra og Philippe Coutinho í skiptum fyrir Neymar á dögunum en PSG hafnaði því tilboði.
Guillem Balague, sérfræðingur í spænska boltanum, segir að Neymar vilji ólmur ganga í raðir Barcelona á ný og sé tilbúinn að taka á sig risa launalækkun til að koma félagaskiptunum í gegn.
„Leikmaðurinn er glaður til í að lækka laun sín frá 38 milljónum evra á mánuði niður í 23 milljónir evra," sagði Balague.
Athugasemdir