Fotbolti.net
16.10.10 - 19:17
Matthías Freyr Matthíasson

Pape Mamadou Faye genginn til liðs við Leikni (Staðfest)

 Pape Mamadou Faye genginn til liðs við Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Pape Mamadou Faye skrifaði í dag undir tveggja ára samning við 1. deildarlið Leiknis. Pape lék lengi með Fylki en samningi hans við félagið var rift í sumar.

Þetta var tilkynnt rétt í þessu á heimasíðu Leiknis.
Pape er er 19 ára gamall sóknarmaður sem leikið hefur bæði með U18 og U19 ára landsliði Íslands.

Segja Leiknismenn að koma Pape til þeirra sé mikill liðsstyrkur og vænti þeir mikils af honum næsta sumar.

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.