Knattpspyrnufélagið Kári á Akranesi auglýsir eftir þjálfara til að stýra liðinu á komandi leiktíð í 2.deild karla.
Liðið hefur á undanförnum árum bætt sig mikið og náði á árunum 2014-2018 að bæta árangur sinn 5 ár í röð sem skilaði þeim í 2.deild.
Leikmannahópurinn er mjög spennandi, en síðustu ár hefur hann verið skipaður af mjög frambærilegum leikmönnum sem margir hverjir hafa spilað marga leiki í efstu tveimur deildunum ásamt því að með liðinu hafa spilað margir af efnilegustu leikmönnum 2.flokkst ÍA sem er sá sterkasti á landinu í dag.
Liðið hefur frá árinu 2014 verið í samstarfi við Knattspyrnufélag ÍA, ásamt því að vera í samstarfi við Metabolic á Akranesi.
Í boði er virkilega spennandi verkefni fyrir metnaðarfullan þjálfara.
Umsóknir berist með tölvupósti í emailið: [email protected]
Þar væri gott að fram kæmi eftirfarandi:
Nafn
Símanúmer
Þjálfaramenntun
Reynsla af þjálfun
Athugasemdir