Said Benrahma hefur fallið á læknisskoðun hjá West Ham en félagið var að ganga frá kaupum á alsírska vængmanninum fyrir 25 milljónir punda.
Talsmaður Brentford segir að viðræður séu í gangi en óvissa ríkir um skiptin.
Talsmaður Brentford segir að viðræður séu í gangi en óvissa ríkir um skiptin.
Benrahma og Brentford hafa átt í deilum en samkvæmt fjölmiðlum hafa þær verið af fjárhagsástæðum.
Lausn þarf að finnast fyrir klukkan 16:00 en þá verður breska innanlandsglugganum lokað.
Uppfært 11:38: Samkvæmt BBC reynir West Ham að finna lausn á vandamálinu og enn er bjartsýni um að Benrahma verði orðinn leikmaður félagsins síðar í dag.
Athugasemdir