Fotbolti.net
16.12.11 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð

Twitter dagsins - Stórstjörnurnar tala um snjóinn

Jack Wilshere leikmaður Arsenal birti þessa mynd úr hádegismatnum. Jólastemmning þar á bæ.

Jack Wilshere leikmaður Arsenal birti þessa mynd úr hádegismatnum. Jólastemmning þar á bæ.

Canon

Mynd: Twitter

Þá er komið að daglegri samantekt af samskiptavefnum Twitter. Miklar umræður eru um fótbolta á Twitter og fjölmargir heimsþekktir fótboltamenn taka þar þátt. Nú þegar lítið er að gerast í íslenska boltanum er meira um erlendu leikmennina en þó slæðist inn einn og einn héðan.
Peter Schmeichel fyrrverandi markvörður Manchester liðanna:
Mér finnst að #Evrópudeildin sé þess virði að fylgjast með, frábærir leikir til að hlakka til. Er nokkuð viss um að TV3+ verði með alla fimmtudaga.

Samuel Ameobi leikmaður Newcastle:
Það er á svona dögum sem ég öfunda skrifstofustarfsmenn #frost

Yossi Benayoun leikmaður Arsenal
Mjög spennandi dráttur gegn Milan. Erfiður leikur en þetta er leikur sem allir myndu vilja fá að taka þátt í.

Daníel Hjaltason leikmaður Modum:
ætlaði allan tímann að hringja í Big W og fá að æfa hjá meistaranum á meðan ég væri á landinu.. svo tognar maður bara framan á læri! ANDSK

Cesc Fabregas leikmaður Barcelona:
Váááá Arsenal gegn Milan!!!! Þvílíkur dráttur!!!!

Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður á X-inu:
Enskadeildin á harðri niðurleið ? ekkert enskt lið í 8 liða úrslitum ?

Már Ingólfur Másson knattspyrnuáhugamaður á Selfossi:
Kristrún Ösp hlýtur að eiga forvitnilegar myndir sem hægt er að nota í \"Íslendingar með frægum\" liðin á .net

Wayne Rooney leikmaður Manchester United:
Ég hata snjó. Vona að hann stoppi stutt við og hafi ekki áhrif á leiki eins og í fyrra.

Rio Ferdinand leikmaður Manchester United:
Það var bara að byrja að snjóa! Vona bara að hann endist til jóla svo það verði jólalegt fyrir mig og fjölskylduna. Litli maðurinn elskar þetta!

Glen Johnson leikmaður Liverpool:
Var að átta mig á að það hafi snjóað! #EkkiGott

Kristinn Steindórsson framherji Breiðabliks:
Afhverju eru karladeildir í fatabúðum alltaf miklu minni? Hvar er jafnréttið?? #ætlafeministarekkiaðvælayfirþessu

Hólmbert Friðjónsson leikmaður Fram:
Að borga þessar 90 milljónir fyrir húsið og lúxusvítunu er bara easy money fyrir Balotelli! #flugeldasýning #þessvirði #GoMario

Anton Ingi Leifsson knattspyrnuáhugamaður:
Hvað ætlar KR að gera með Hauk Heiðar? Dofri var frábær í fyrra og steig upp á mikilvægum tímap. í lokin og Maggi Lú var helvíti seigur?

Sif Atladóttir leikmaður Kristianstad og kvennalandsliðsins:
Litli Bró skorar fyrir KR móti KV... Algjör snilld :) #stoltsystir

Matthías Örn Friðriksson leikmaður Grindavíkur:
3 ár í Grindavík í viðbót (staðfest)

Daníel Geir Moritz fyndnasti maður Íslands:
Það gefur KR byr undir báða vængi að fá Atla Sigurjóns. #fyrirsjáanlegurbrandari?
Sammy Ameobi leikmaður Newcastle birti þessa mynd og segist ákveðinn í að ramma þessa treyju inn.

Sammy Ameobi leikmaður Newcastle birti þessa mynd og segist ákveðinn í að ramma þessa treyju inn.

Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.