17.01.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham kaupir Yago og lánar hann (Staðfest)

Yago Falque í leik með Tottenham

Mynd: Getty Images

Yago Falque í leik með Tottenham

Mynd: Getty Images
Tottenham Hotspur á Englandi hefur keypt spænska leikmanninn Yago Falque frá Juventus á Ítalíu.
Yago, sem er 22 ára gamall miðjumaður kom til Tottenham á lán síðasta sumar frá Juventus og heillaði það mikið að enska liðið ákvað að festa kaup á honum en hann hefur spilað rullu sem varamaður hjá liðinu.
Tottenham hefur hins vegar lánað hann strax til Southampton í Championshipdeildinni út tímabilið til þess að hann fái fleiri tækifæri á vellinum. Hann hefur spilað sex leiki en fimm þeirra voru í Evrópudeildinni.
Hann kemur upphaflega úr unglingastarfi Barcelona, en eftir að hann fór til Juventus þá var hann lánaður bæði til Bari og varaliðs Villarreal.

Heimild: BBC