17.01.12 - 17:24
Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Þór og Úlfar Hrafn í Val (Staðfest)

Ásgeir Þór og Úlfar Hrafn spila með Val í sumar.

Mynd: Úr einkasafni

Ásgeir Þór Ingólfsson og Úlfar Hrafn Pálsson eru gengnir til liðs við Val frá Haukum og skrifuðu undir samning á Hlíðarenda rétt í þessu.
Leikmennirnir skrifuðu báðir undir eins árs framlengingu á samninga sína hjá 1. deildarliði Hauka og eru lánaðir út komandi leiktíð til Vals sem leikur í Pepsi-deildinni.

,,Vill þakka Haukum kærlega fyrir allt og frábær ár. Verður gaman að spila með Valsmönnum! #erfittaðskiljaviðHauka #Frábærirtímarframundan,\" skrifaði Ásgeir á Twitter síðu sína í dag.
Ásgeir og Úlfar eru báðir uppaldir hjá Haukum og hafa verið fastamenn í liðinu undanfarin ár. Ásgeir er 21 árs gamall miðjumaður en Úlfar er 23 ára vinstri kantmaður og bakvörður.
Þeir hafa einnig vakið athygli út fyrir landssteinana því þeir fóru til Besiktas í Tyrklandi í október síðastliðinn. Til greina kom á þeim tíma að þeir yrðu lánaðir til Tyrklands en ekkert varð úr því.
Fleiri félög í Pepsi-deildinni, þar á meðal ÍBV, sýndu þeim áhuga en þeir völdu á endanum að fara í Val.
Þeir spiluðu báðir æfingaleik með Val gegn BÍ/Bolungarvík á sunnudaginn og skoruðu þá hvor eitt mark í 2-0 sigri.