17.01.12 - 19:35
Alexander Freyr Tamimi
Josh McEachran í Swansea (Staðfest)

Josh McEachran í leik með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Josh McEachran í leik með Chelsea.

Mynd: Getty Images
Swansea hefur staðfest að miðjumaðurinn Josh McEachran er genginn til liðs við félagið á láni frá Chelsea út tímabilið.
Þessi efnilegi U21 landsliðsmaður Englands hefur ekki fengið nægan spiltíma hjá Chelsea á tímabilinu, en hann gæti veitt Gylfa Þór Sigurðssyni samkeppni um stöðu á miðjunni í Wales.
McEachran er einungis 18 ára en er talinn vera gríðarlegt efni. Hann er ánægður með að vera kominn til Swansea á láni.
,,Í fullri hreinskilni, þá er ég í skýjunum með að vera kominn hingað,\" sagði McEachran við heimasíðu Swansea.
,,Ég vildi koma hingað fyrr, en Chelsea var í einhverjum smá meiðslavandræðum.\"
,,Það var áhugi til staðar frá öðrum félögum í úrvalsdeildinni, en ég vildi koma til Swansea vegna leikstíls liðsins. Ég tel að hann muni henta mér.\"

Heimild: Sky