Fotbolti.net
17.01.12 - 21:24
Alexander Freyr Tamimi

Papiss Cisse til Newcastle (Staðfest)

Papiss Cisse er genginn til liðs við Newcastle.

Papiss Cisse er genginn til liðs við Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Papiss Cisse frá SC Freiburg í Þýskalandi. Skrifaði hann undir fimm og hálfs árs samning við félagið í kvöld.
Kaupverðið á þessum landsliðsmanni Senegal var ekki gefið upp, en hann mun klæðast treyju númer níu.

Cisse mun taka þátt í Afríkumótinu með senegalska landsliðinu en hann flaug þó til Newcastle til að ganga frá samningum. Hann hóf feril sinn hjá AS Douanes í Dakar en átti svo góðan feril hjá Metz, Cherbourg og Chateauroux í Frakklandi.

Í desember 2009 gekk hann til liðs við Freiburg þar sem hann skoraði 37 mörk í 65 leikjum. Hann er hæstánægður með að vera kominn í ensku úrvalsdeildina.

,,Ég vil þakka öllum fyrir hlýar móttökur og fyrir að hafa gert mér kleift að ganga til liðs við þetta félag,\" sagði Cisse.

,,Það er heiður að spila fyrir svona stórt félag og ég hlakka til. Ég vil endurgjalda traustið sem stjórnin hefur sýnt mér og gera stuðningsmennina stolta.\"

,,Ég geri mér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem er fólgin í því að spila í treyju númer níu. Þegar ég talaði við stjórann gerði hann mér grein fyrir mikilvægi þessa númers.\"

Heimild: Vefur Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.