Framherjinn Dagur Traustason er líklega á leið í Fylki en frá því var greint í Dr. Football í gær. Í samtali við Fótbolta.net í kvöld sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, að það væru viðræður í gangi við Dag.
Heimir þekkir vel til Dags (2005) en þeir unnu saman hjá FH síðustu ár þar sem Heimir var þjálfari Hafnarfjarðarliðsins. Samningur Dags við FH rann út eftir síðasta tímabil, en hann hefur verið að spila í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Dagur skoraði tvö mörk í átta leikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Fylkir
Sigurbergur Áki Jörundsson sleit krossband í leik með Fylki í síðustu viku og verður því ekkert með í sumar. Heimir sagði meiri líkur á því að Fylkir taki inn miðjumann heldur en miðvörð í stað Sigurbergs.
Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson orðaði í gær Albert Hafsteinsson við Fylki en Skagamaðurinn er án félags eftir að hann og ÍA náðu samkomulagi um riftun.
Heimir sagði að það væri í skoðun hvort Albert komi í Fylki. Ef Albert kemur í Fylki verður það þriðji leikmaðurinn sem lék með ÍA í fyrra sem gengur í raðir Fylkis í vetur, því fyrr í vetur sömdu þeir Hlynur Sævar Jónsson og Guðfinnur Þór Leósson við Fylki.
Höfðinginn var að hjóla í Árbæjarlaugina á CUBE hjólinu mínu og sá Albert Hafsteins úti á velli með Heimi Guðjóns að skoða aðstæður í Árbænum.#HeimavinnaHöfðingjans
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) March 16, 2026
Athugasemdir