Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 17. apríl 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Tvö sigursælustu liðin mætast í úrslitum
Það er ekkert spilað í spænsku úrvalsdeildinni í dag en það verður spilað í bikarnum.

Það er sjálfur úrslitaleikurinn sem fer fram klukkan 19:30. Athletic Bilbao mætir Barcelona á heimavelli Sevilla.

Bilbao spilað í bikarúrslitaleik fyrir tveimur vikum síðan en tapaði þá 1-0 fyrir Real Sociedad. Það var úrslitaleikur síðasta tímabils sem hafði verið frestað vegna kórónuveirufaraldursins.

Barcelona hefur unnið þessa keppni oftast allra eða 30 sinnum; síðast 2018. Bilbao á næstflesta titla eða 23, en liðið vann keppnina síðast 1984.

laugardagur 17. apríl
19:30 Athletic - Barcelona
Athugasemdir