„Finnst við hafa mikið að sanna eftir síðasta tímabil í efstu deild"

Halldór Jón Sigurðsson, Donni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll spilar aftur í efstu deild eftir stutt stopp í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Mér finnst þetta magnað, þetta er engin smáræðisvinna'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amber Michel var frábær markvörður fyrir liðið en hún er hætt í fótbolta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Murielle Tiernan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Laufey Harpa er mætt aftur eftir dvöl hjá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll fagnar eftir sigur síðast þegar þær voru í Bestu deild.

Mynd: Hrefna Morthens

'Ég er mjög vongóður um að það verði brjáluð stemning hjá okkur'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Jón Sigurðsson, Donni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll mun í annað sinn leika í Bestu deild kvenna í sumar en liðinu er spáð níunda sæti deildarinnar af spámönnum Fótbolta.net.
Ég elska að vera á Sauðárkróki
Donni er mjög farsæll þjálfari og hefur orðið Íslandsmeistari í efstu deild kvenna en hann er uppalinn á Sauðárkróki. Hann sneri aftur heim fyrir síðustu leiktíð eftir dvöl í Svíþjóð.
„Það var alveg dásamlegt," segir Donni um það hvernig það var að snúa aftur á Krókinn. „Ég elska að vera hér á Sauðárkróki. Það er virkilega góð stemning og mikill meðbyr í samfélaginu. Það var einhugur að reyna að koma liðinu aftur upp. Fólk studdi vel við bakið hjá okkur og þetta var mjög skemmtilegt sumar."
Donni þjálfaði bæði karla- og kvennaliðið á síðasta tímabili.
„Það var brjálæðislega mikið að gera. Ég er líka umsjónarkennari 7. bekks í Árskóla. Það var mjög mikið að gera en með hjálp góðs fólks er þetta hægt. Það voru pínu vonbrigði að fara ekki upp með karlaliðið líka en við vorum ansi nálægt því. Þetta var mjög mikið en gekk vel. Ég vil meina að ég hafi náð að halda þessum boltum vel á lofti. Ég er var ekki með í tveimur leikjum hjá karlaliðinu en náði annars öllum leikjum. Það gekk vel að samtvinna þetta allt saman."
Hann hafði strax trú á því að Tindastóll gæti farið beint aftur upp í Bestu deildina.
„Já, að sjálfsögðu. Ég hef aldrei lagt út fyrir neitt annað en að reyna að vinna allt. Við ætluðum okkur það, engin spurning. Kjarninn hélst vel saman og það var stór faktor í því að við áttum möguleika. Það var góð stemning frá byrjun og við náðum upp góðu tempói í öllu sem við vorum að gera, góðum takti."
Mér finnst þetta magnað
Það er ansi athyglisvert að félag úr eins litlum bæ og Sauðárkróki sé að fara að leika í efstu deild í fótbolta í annað sinn.
„Mér finnst þetta magnað, þetta er engin smáræðisvinna. Við erum með leikmenn út um allan heim. Yfir vetrartímann eru margir leikmenn í Reykjavík eða á Akureyri, eða þá bara erlendis. Við erum ekki með stóran æfingahóp á Sauðárkróki og ekki heldur núna. Þetta er mikið púsl en samt skemmtilegt púsluspil því við vitum hvernig það endar. Það endar á því að það koma allir hingað heim. Miðað við allt þá held ég að okkur sé að takast mjög vel til."
Þegar æfingahópurinn er lítill þá æfa stelpurnar og strákarnir saman hjá félaginu.
„Við æfðum með strákunum fyrri part veturs eins og við gerðum í fyrra. Á veturnar æfa strákarnir og stelpurnar saman í vel flestu. Karlar og konur æfa alveg jafnmikið og eins ef þetta er gert almennilega. Við vorum með tækniæfingar og styrktaræfingar á sama tíma, vorum að gera svipaða hluti. Það fúnkeraði fínt. Þetta er samt mikið púsl og erfitt að halda öllum í gangi endalaust alltaf en ég held að það hafi gengið mjög vel. Svo verður þetta dæmt þegar tímabilið byrjar og ég er mjög spenntur að sjá hvernig það fer."
Donni segist vera ánægður með undirbúningstímabilið. „Ég er mjög ánægður með undirbúningstímabilið. Ef við tölum um Lengjubikarinn þá spiluðum við Breiðablik og Stjörnuna. Stærsti hlutinn af þeim leikjum var bara mjög góður þó það endaði í stórum tölum. Við vinnum hina leikina nokkuð örugglega fannst mér. Mér fannst við hafa ákveðna yfirburði þar. Það hefur verið mikill stígandi í því sem við höfum verið að gera. Við fórum í góða æfingaferð og þjöppuðum hópnum betur saman þar. Ég er mjög spenntur fyrir fyrsta leik í deildinni."
Sami kjarni haldist
Hópurinn hefur ekki breyst mjög mikið frá síðustu leiktíð, sami kjarni er til staðar.
„Hópurinn er mjög svipaður og hann var á seinni hluta tímabilsins í fyrra. Við missum Kristrúnu (Maríu Magnúsdóttur) út, sem hefur spilað nánast alla leiki síðustu fimm eða sex ár. Það er risa högg. Hún sleit krossband og eiginlega allt í hnénu. Við misstum Örnu Kristins, hún hætti í fótbolta. Svo skiptum við um markvörð og fáum inn þýska stelpu í vörnina. Annars er þetta sami hópurinn í rauninni, við fáum inn leikmenn sem voru meiddir og fáum líka Laufeyju heim frá Breiðabliki. Það er risastórt fyrir okkur. Þetta er mjög svipaður kjarni og sterkur kjarni af heimastelpum í bland við sterka erlenda leikmenn," sagði Donni.
Amber Michel, sem hefur verið mögnuð í marki Tindastóls síðustu ár, hætti í fótbolta eftir síðustu leiktíð.
„Nýi markvörðurinn er öðruvísi en Amber, hún er alls ekki síðri markvörður. Amber var að mínu mati langbesti markvörðurinn í deildinni og mögulega á Íslandi. Það er erfitt að setja einhverja aðra á þann stall áður en tímabilið byrjar. Monika er með mjög mikla og góði kosti, og hefur komið ótrúlega sterk inn í þetta hjá okkur. Hún á vonandi eftir að standa sig frábærlega í sumar. Ég þekki nú deildina ágætlega og það sem þarf að gera til að ná árangri. Mér líður eins og hún smellpassi inn í það sem við þurfum í markverði."
Murielle Tiernan hefur raðað inn mörkum fyrir Tindastól síðustu ár en hún var mikið meidd þegar hún var í efstu deild síðast.
„Murielle hefur ekki verið neitt meidd í ansi langan tíma. Sjö, níu, þrettán og allt það. Við þurfum gríðarlega mikið á henni að halda. Hún er búin að skora 109 mörk í 108 leikjum fyrir liðið. Hún er alveg heil eins og hún er og við vonum að hún verði það áfram. Hún var ekki heil þegar hún spilaði síðast í úrvalsdeild en við erum búin að vinna mikið með henni frá því ég tók við að fara varlega með hana en samt að byggja hana upp. Ég geri mér miklar vonir um að hún haldist heil og geti beitt sér að fullu í deildinni."
Er breiddin nægilega góð?
„Við erum náttúrulega með ansi óreynt lið í þessari deild. Vissulega væri vænlegra - eðlilega - að vera með fleiri leikmenn sem hafa spilað á þessu stigi. Við erum ekkert hrædd við breiddina eins og staðan er í dag. Við erum með leikmenn sem geta vel plummað sig, staðið sig og orðið betri með tímanum og reynslunni. Það er ekkert launungarmál að það væri vissulega betra að vera með fleiri leikmenn sem eru með reynslu á þessu kalíberi," segir Donni.
„Svo erum við náttúrulega í þannig stöðu og í þannig samfélagi að við viljum gefa stelpunum tækifæri að þróa sig og verða betri. Það er það sem við viljum. Við erum ekki að stefna á að verða Íslandsmeistarar, við erum að stefna öðruvísi markmiðum. Til þess að geta byggt upp til lengri tíma viljum við byggja á stelpunum sem eru hérna að mestu leyti. Það væri hægt að hafa meiri breidd en við teljum hana nægilega góða núna."
Hann segir það vissulega erfitt að fá íslenska leikmenn norður á Sauðárkrók.
„Við urðum var við það í fyrra seinni hluta tímabils þegar við ætluðum að ná okkur í leikmenn í glugganum. Þá reyndum við að taka unga leikmenn úr öðrum liðum en fengum þvert nei. Þær vildu ekki fara svona langt frá fjölskyldunni og svo framvegis. Maður getur skilið það, engin spurning. Það er þægilegra að vera heima hjá foreldrum, nálægt fjölskyldu og vinum. Mín skilaboð til yngri leikmanna og annarra leikmanna væru þau að það er ótrúlega þroskandi að fara aðeins út fyrir rammann og prófa nýja hluti," segir Donni og bætir við:
„Sauðárkrókur hefur í gegnum tíðina reynst ansi mörgum býsna vel og er geggjaður staður til að búa á. Ég held að fólk ætti yfir höfuð að vera opnara fyrir því að prófa nýja hluti, víkka sjóndeildarhringinn og reyna aðeins á sig bæði sem leikmann og manneskju. Það er sturlað að búa út á landi, stutt í allt og allir svo samheldnir. Liðið heldur sig mikið saman, er að ferðast og skoða landið. Þetta er ótrúlega skemmtilegt á sumrin hjá okkur."
Mjög vongóður um að það verði brjáluð stemning hjá okkur
Maður hefur tekið eftir því í körfuboltanum að það er gríðarlega mikil stemning hjá Tindastóli. Donni er vongóður um að það verði mjög góð stemning á leikjunum hjá félaginu í Bestu deildinni í sumar.
„Ég er mjög vongóður um að það verði brjáluð stemning hjá okkur. Ég held að það hafi verið 1500 til 2000 manns á vellinum í úrslitaleiknum gegn FH um efsta sætið í fyrra. Það var brjáluð stemning og ég geri fastlega ráð fyrir því að stemningin verði gríðarlega mikil í sumar, sérstaklega eftir að Tindastóll tekur vonandi við Íslandsmeistaratitilinum í körfuboltanum," segir Donni.
„Sauðárkrókur er náttúrulega ótrúlegt samfélag. Það er mjög samheldið og stendur vel við bakið á sínu fólki. Það er alltaf þannig, við hjálpumst öll að og stuðningurinn sem við fáum úr samfélaginu er gríðarlega mikill. Við erum ótrúlega þakklát fyrir það. Við getum haldið úti sterkum liðum því samfélagið stendur svo vel saman og við bakið á liðunum. Ég geri fastlega ráð fyrir því að það verði brjáluð stemning og að við munum eiga bestu stuðningsmennina. Það er bara spennandi."
Að lokum sagði þjálfarinn:
„Það er alls ekki óvænt að okkur sé spáð níunda sæti. Það kemur mér hins vegar á óvart að okkur sé ekki spáð tíunda. Við erum að vinna í okkar styrkleikum og markmiðum. Við stefnum auðvitað á sigur í öllum leikjum og sjáum hvert það dregur okkur. Við ætlum að leggja allt í hvern einasta leik og sjá hvað gerist. Ef stelpurnar leggja á sig þá vinnu sem þarf til að ná árangri innan sem utan vallar þá munum við að öllum líkindum afsanna þessa spá."
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 9. sæti
Hin hliðin - Hugrún Pálsdóttir (Tindastóll)
Ætlaði að nota fótboltann til að skoða heiminn en festi svo rætur í litlum bæ á Íslandi

Tindastóll spilar aftur í efstu deild eftir stutt stopp í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Mér finnst þetta magnað, þetta er engin smáræðisvinna'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amber Michel var frábær markvörður fyrir liðið en hún er hætt í fótbolta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Murielle Tiernan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Laufey Harpa er mætt aftur eftir dvöl hjá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll fagnar eftir sigur síðast þegar þær voru í Bestu deild.

Mynd: Hrefna Morthens

'Ég er mjög vongóður um að það verði brjáluð stemning hjá okkur'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




