17.04.23
Ætlaði að nýta fótboltann til að skoða heiminn en festi svo rætur í litlum bæ á Íslandi
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Murielle Tiernan er á leið inn í sitt sjötta tímabil með Tindastóli. Hún hefur hjálpað félaginu að komast upp úr 2. deild í Bestu deildina með því að skora meira en mark í leik að meðaltali. Hún lítur á Sauðárkrók sem sitt annað heimili og er þakklát fyrir fólkið í samfélaginu. Murielle glímir við erfið veikindi en lætur það alls ekki stoppa sig í fótboltanum. Hún hefur fulla trú á því að Tindastóll geti haldið sér í Bestu deildinni.
„Já, ég er klárlega spennt fyrir tímabilinu. Undirbúningstímabilið hefur verið gott en erfitt," segir Murielle í samtali við Fótbolta.net þegar hún er spurð út í tímabilið sem er framundan.
„Það var aðeins kaldara og það snjóaði meira en það gerir vanalega á Sauðárkróki í febrúar og mars. Það gerði okkur aðeins erfiðara fyrir, en við fórum til Spánar í síðasta mánuði sem var frábært og síðan við komum heim þá hefur veðrið verið mun betra."
Murielle er á leiðinni inn í sitt sjötta tímabil með Tindastóli. „Ég trúi því ekki að það sé svona langt síðan ég kom hingað. Til að súmmera þetta upp þá hefur þetta verið hreint út sagt stórkostlegur tími."
Elska liðið, elska bæinn og ég elska landið
Murielle vakti strax mikla athygli á sínu fyrsta tímabili með Tindastóli þegar liðið var í 2. deild. Hún tók til dæmis stóran þátt í leik sumarsins á fyrsta ári sínu hér á landi. Það var leikur gegn Gróttu þar sem Tindastóll lenti 2-5 undir en tókst að vinna 6-5. Murielle skoraði þrennu á átta mínútum og tryggði gestunum sigur.

„Murielle í leik á sínu fyrsta tímabili með Stólunum.“
„Ég er svo stolt af þeim og ég elska að spila með þeim."
Hún hefur farið með félaginu upp úr neðstu deild og upp í þá efstu, Bestu deildina. Í leiðinni hefur hún skorað 109 mörk í 108 leikjum fyrir félagið.
„Ég hef alltaf elskað fótbolta af því ég hef fengið að spila með mögnuðum liðum. Ég er ekki mikið fyrir það að fara ein út að æfa í marga klukkutíma, ég elska að vera í kringum fólk og vera hluti af liði. Ég er auðvitað ánægð að skora mörk og hjálpa liðinu þannig að ná árangri," segir Murielle.
„Það hefur verið magnað að fylgjast með leikmönnunum í liðinu vaxa frá því ég kom hingað fyrst. Ég er svo stolt af þeim og ég elska að spila með þeim."

„'Það hefur verið magnað að fylgjast með leikmönnunum í liðinu vaxa frá því ég kom hingað fyrst'“
Margir spyrja sig kannski að því hvers vegna Murielle heldur áfram að koma á Sauðárkrók ár eftir ár. Hún segist elska samfélagið og að vera hér á landi.
„Ég kom fyrst til Íslands því ég vildi skoða landið. Ég byrjaði að spila í útlöndum til að skoða heiminn og prófa að búa erlendis. Ég notaði fótbolta sem verkfæri til að gera það, að skoða heiminn. Þegar ég kom til Tindastóls árið 2018 var ég stressuð yfir því að vera eini útlendingurinn því ég hafði verið í þeirri stöðu í Svíþjóð. En fólkið hérna er magnað og tók gríðarlega vel á móti mér. Ég elska liðið, elska bæinn og ég elska landið."
Mjög öðruvísi en heima í Bandaríkjunum
Murielle kemur frá Ashburn sem er í útjaðri Washington í Bandaríkjunum. Það er mikill munur á lífinu þar og á Sauðárkróki, sem er lítill bær hér á Íslandi.
„Stundum líður mér eins og Sauðárkrókur sé aðeins of lítill en ég kom frá mjög fjölmennu svæði sem er rétt frá Washington D.C. í Bandaríkjunum. Ég hef samt alltaf kunnað að meta muninn á lífstílnum hérna og heima. Það er svo mikil fegurð í þessum litla bæ; ég elska litla fjörðinn okkar og það að sólin skuli aldrei setjast á sumrin."

„Í leik gegn KR.“
Hvað gerir Murielle á Sauðárkróki þegar hún er ekki að spila fótbolta?
„Við erlendu leikmennirnir í liðinu erum í vinnu nokkrar klukkustundir á dag. Á veturna hjálpa ég við að þjálfa krakkana í fótbolta og á sumrin vinn ég líka á vellinum. Þegar við erum í fríi þá erum við í liðinu mikið saman og við erum mikið að skoða svæðið og landið þegar veðrið er gott. Ég er búin að vera hér lengi og hef séð mikið af Íslandi en ég elska að skoða með nýju fólki og það er alltaf eitthvað nýtt sem hægt er að sjá."
Hún segir það mikilvægt að hafa aðra erlenda leikmenn í hópnum. „Það er mjög mikilvægt. Ég var sú eina á fyrsta árinu mínu og það var samt frábært en þá ertu aðeins meira ein. Ég var heppin að vera með stórkostlega íslenska liðsfélaga og á þeim tíma var góð vinkona mín úr æsku einnig að spila hér á landi. Eftir fyrsta árið mitt hafa alltaf fleiri erlendir leikmenn verið í liðinu og það er betra að hafa fleiri stelpur í liðinu sem eru í sömu stöðu og þú."
„Jackie (Altschuld) kom á öðru tímabilinu mínu og var hér í þrjú tímabil. Hún er ein mín besta vinkona og það var erfitt að kveðja hana. En það kemur maður í manns stað. Hannah og Mel eru núna að fara inn í sitt annað tímabil með félaginu og þær eru báðar magnaðar manneskjur og frábærar fótboltakonur. Ég er svo þakklát fyrir þær báðar."

„Murielle hefur skorað 109 mörk í 108 leikjum fyrir Tindastól.“
Markvörðurinn Amber Michel yfirgaf Tindastól eftir síðustu leiktíð en hún var hjá félaginu í þrjú tímabil. Hún hætti í fótbolta eftir að hafa fengið góða vinnu. Murielle segir að það hafi auðvitað verið erfitt að kveðja hana. „Við munum klárlega sakna hennar en ég er stolt af henni fyrir að hafa gert það sem var best fyrir sjálfa sig þótt það hafi verið erfið ákvörðun," segir Murielle.
Glímir við erfið veikindi
Murielle er stórkostlegur markaskorari en það gerir hennar afrek enn merkilegri að hún er greind með cystic fibrosis, eða slímseigjusjúkdóm, sem er ólæknandi erfðasjúkdómur. Hægt er að lesa um sjúkdóminn með því að smella hérna.
„CF er bara hluti af lífi mínu," segir Murielle.

„Ég hef lifað með þessu alla mína ævi."
„CF er bara hluti af lífi mínu," segir Murielle.

„Jacqueline Altschuld.“
„Ég hef lifað með þessu alla mína ævi og hef lært að búa við þetta. Veikindin hafa meiri áhrif á mig í heitara loftslagi og því leitaðist ég eftir því að spila í meiri kulda á Norðurlöndunum eftir að ég útskrifaðist úr háskóla."
„Ég lenti einu sinni í smá vandræðum með veikindin. Það var árið 2020 þegar Covid stóð sem hæst. Þá gat ég ekki fengið lyfin mín að heiman þar sem gestir máttu ekki koma en foreldrar mínir koma vanalega í heimsókn og koma þá í leiðinni með lyfin mín að heiman. Það reddaðist samt allt því það er frábært fólk hér í bænum sem hjálpaði mér að finna það sem ég þurfti á að halda."
Hún segir að veikindin hafi aldrei stoppað sig, aldrei hafi hún hugsað um að hætta í fótbolta út af þeim. „Nei, þvert á móti. Veikindin eru eiginlega ein af ástæðunum fyrir því að ég held áfram að spila. Það er eiginlega ekkert betra fyrir mig en góð og mikil hreyfing. Það hjálpar mér að hreinsa lungun og halda þeim sterkum. Ég er meira stressuð fyrir því hvernig veikindin munu hafa áhrif á mig þegar ég hætti að spila."
Þetta er eins og heimili mitt
Murielle er á leið inn í sitt annað tímabil með Tindastóli í Bestu deildinni. Hún átt erfitt fyrsta tímabil í deildinni árið 2021 þar sem hún var mikið meidd.

„Amber Michel.“
„Sauðárkrókur er eins og heimili mitt."
„Það var erfitt tímabil, klárlega. Ég var nokkuð mikið meidd en það var líka bara það að við vorum margar að spila í fyrsta sinn í efstu deild, sem var erfitt. Við börðumst fyrir þeim stigum sem við fengum en það dugði ekki. Við erum betur undirbúin fyrir tímabilið í ár þar sem við erum með meiri reynslu í efstu deild núna," segir Murielle.
Aðspurð að því hvort hún telur að Tindastóll geti haldið sér uppi í ár, sagði Murielle einfaldlega: „Já."
„Markmiðið var alltaf að fara beint upp. Við vorum ekkert svo langt frá því að halda okkur uppi. Við teljum okkur eiga heima hérna í þessari deild. Lykillinn að okkar árangri hefur alltaf verið baráttuandinn og það að við erum tilbúnar að leggja mikið á okkur. Við vorum með markmið á síðasta ári og við börðumst mikið til að ná því."

„'Veikindin eru eiginlega ein af ástæðunum fyrir því að ég held áfram að spila'“
„Við viljum taka leik fyrir leik á þessu tímabili. Við förum í alla leiki til að vinna. Persónuleg markmið mín eru alltaf þau sömu; að halda heilsu og hjálpa liðinu hvernig sem ég get."
Murielle hefur alltaf spilað með Tindastóli hér á landi þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum. Að lokum var hún spurð út í það, hvort það hefði verið erfitt að horfa fram hjá áhuga frá öðrum félögum.
„Það var kannski erfiðast á fyrsta tímabilinu mínu en ég elska liðið mitt og bæjarfélagið. Ég elska að hjálpa þessu félagi sem hefur komið svo vel fram við mig. Ég get ekki þakkað þeim nægilega mikið fyrir það sem þau hafa gert fyrir mig. Sauðárkrókur er eins og heimili mitt. Að spila fótbolta er vinnan mín en ég set það fram fyrir allt að eiga gott líf. Svo nei, það hefur ekki verið erfitt að halda kyrru fyrir heima hjá mér."
Murielle og liðsfélagar hennar í Tindastóli hefja leik í Bestu deildinni gegn Keflavík eftir rúma viku. Fyrsti leikurinn er á heimavelli á Króknum.

„Úr leik hjá Stólunum síðasta sumar.“

„Í leik gegn Breiðabliki síðast þegar Tindastóll lék í Bestu deildinni.“

„Ná Stólarnir að halda sér uppi í ár?“