Fotbolti.net
17.05.10 - 11:35
Hörður Snævar Jónsson

Ágúst Þór og Ragnar Heimir á láni til Augnabliks (Staðfest)

Ágúst Þór (t.h) í leik með Hvöt sumarið 2008.

Ágúst Þór (t.h) í leik með Hvöt sumarið 2008.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

3. deildar liðs Augnabliks hefur fengið þá Ágúst Þór Ágústsson og Ragnar Heimir Gunnarsson að láni frá Fjölni.
Ágúst Þór hefur verið mikið meiddur í vetur en hann lék 13. leiki með Fjölni í Pepsi deildinni í fyrra.

Ragnar Heimir leiki með Fjölni í fyrra og skoraði í þeim leikjum eitt mark. Bæði Ágúst og Ragnar hófu að leika með meistaraflokki hjá Breiðablik.

Þeir verða báðir löglegir með Augnablik á morgun er liðið mætir Aftureldingu í VISA-bikarnum.

Þá gekk Björn Jakobsson í raðir Augnabliks en hann hefur á sínum ferli leikið með Breiðablik, FH, KR og ÍBV og á leiki með U21 og U19 ára landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.