Fotbolti.net
17.06.10 - 08:59
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Gianluca Atzori nýr þjálfari Reggina (Staðfest)

Emil Hallfreðsson í leik með Reggina gegn Fiorentina.

Emil Hallfreðsson í leik með Reggina gegn Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Reggina hefur kynnt Gianluca Atzori sem nýjan þjálfara liðsins.

Íslendingurinn knái Emil Hallfreðsson er á mála hjá ítalska Seríu B liðinu en hann er búinn að vera á láni hjá Barnsley á Englandi allt nýliðið tímabil.
,,Reggina Calcio hefur tilkynnt valið á Gianluca Atzori sem nýjan þjálfara aðalliðsins. Hann mun vera kynntur formlega til fjölmiðla næstkomandi mánudag klukkan 11:30 á Centro Sportivo S. Agata,\" stendur á vefsíðu félagsins.

Atzori þjálfaði Catania fyrrihluta síðasta tímabils en stóðst ekki kröfurnar sem voru gerðar til hans og Sinisa Mihajlovic tók við af honum fyrir síðustu jól, en Mihajlovic er núna við stjórnvölinn hjá Fiorentina.

Atzori lék með Reggina tímabilið 1996-97 og var þá byrjunarliðsmaður. Áhugavert verður að fylgjast með því hvort Emil fái eitthvað að spreyta sig en hann var áður fyrr í byrjunarliðinu þegar liðið var ennþá í efstu deild Ítalíu, Seríu A.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.