Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 17. júní 2021 19:40
Victor Pálsson
Daka að ganga í raðir Leicester - Kynntur í næstu viku
Mynd: Getty Images
Framherjinn Patson Daka mun skrifa undir hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Leicester á næstu dögum.

Blaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá þessu í kvöld en Daka hefur verið orðaður við ýmis lið á Englandi og þar á meðal Liverpool.

Romano segir að Daka muni ganga í raðir Leicester og að RB Salzburg sé búið að samþykkja tilboð liðsins.

Leicester vill tilkynna kaupin í næstu viku og hefur félagið því betur í baráttunni við bæði Liverpool og Chelsea.

Daka er 22 ára gamall framherji en hann hefur skorað 54 mörk fyrir Salzburg í 82 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner