17.07.10 - 07:59
Magnús Már Einarsson
Ibrahima Sonko til Portsmouth (Staðfest)

Sonko í baráttu við Didier Drogba.

Mynd: Getty Images

Sonko í baráttu við Didier Drogba.

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur fengið varnarmanninn Ibrahima Sonko á láni frá Stoke City.
Portsmouth er reyndar sem stendur í félagaskiptabanni og því þarf félagið að bíða eftir leyfi til að félagaskiptin gangi í gegn.
Sonko, sem er 29 ára, hefur einungis leikið 17 leiki með Stoke síðan hann kom til félagsins frá Reading árið 2008.
,,Hann hefur verið svolítið óheppinn með tíma sinn hjá Stoke. Hann þarf bara að byrja að spila aftur,\" sagði Steve Cotterill stjóri Stoke.
,,Hann er stór, sterkur og mjög kröftugur varnarmaður. Ég hef fylgst með honum í þónokkurn tíma og mér fannst hann standa sig frábærlega hjá Reading.\"

Heimild: BBC