17.07.10 - 08:17
Magnús Már Einarsson
Daryl Murphy til Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Skoska félagið Celtic keypti í gær framherjann Daryl Murphy frá Sunderland á 1,5 milljónir punda.
Þessi 27 ára gamli Íri skrifaði undir þriggja ára samning við Neil Lennon og lærisveina hans.

Murphy getur bæði leikið sem fremsti maður og á kantinum en hann var í láni hjá Ipswich á síðasta tímabili þar sem hann skoraði sex mörk í átján leikjum.
,,Margir í fjölskyldu minni eru harðir stuðningsmenn Celtic,\" sagði Murphy í gær.
,,Ég studdi liðið þegar ég ar ungur og ólst upp við að fylgjast með félaginu. Um leið og ég heyrði að þeir hefðu áhuga á mér þá var þetta sjálfgefið.\"

Heimild: BBC