17.07.10 - 10:50
Magnús Már Einarsson
Brendan Rodgers tekinn við Swansea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Swansea City hefur ráðið Brendan Rodgers sem knattspyrnustjóra en hann tekur við liðinu af Paulo Sousa sem var ráðinn stjóri Leicester á dögunum.
Rodgers, sem er 37 ára var áður í þjálfaraliðinu hjá Chelsea en hann er góðvinur Jose Mourinho þjálfara Real Madrid.
Síðastliðið sumar tók Rodgers við Reading en hann stoppaði einungis í nokkra mánuði þar.
Hann tekur nú við Swansea sem kemur frá Wales en liðið leikur í Championship deildinni á Englandi.
Síðastliðið sumar tók Rodgers við Reading en hann stoppaði einungis í nokkra mánuði þar.
Hann tekur nú við Swansea sem kemur frá Wales en liðið leikur í Championship deildinni á Englandi.
Heimild: BBC
